Síðastliðin átta ár hefur átthagafræði verið fastur liður í skólastarfi Grunnskóla Snæfellsbæjar í öllum árgöngum. Í dag, þann 30. október 2019, opnuðum við nýja heimasíðu um átthagafræðina þar sem hægt er að kynna sér námskrá hennar, unnin verkefni og fréttir af starfinu. Nemendur sáu um að kynna síðuna fyrir viðstöddum. Það var ánægjulegt að geta opnað síðuna sama dag og Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson heimsótti skólann okkar en það var liður í opiberri heimsókn hans til Snæfellsbæjar.
Við erum afskaplega stolt af síðunni okkar og gleður það okkur að gera öðrum fært að kynna sér starfið í átthagafræðinni. Vefslóðin að síðunni er https://www.atthagar.is/ . Til að fylgja opnun hennar eftir birtist í dag grein í vefritinu Skólaþræðir um átthagafræðina. http://skolathraedir.is/2018/04/20/atthagafraedi-i-grunnskola-snaefellsbaejar/
Kommentare