top of page

Nýverið fóru nemendur í 4. bekk í heimsókn í Sjávariðjuna í Rifi og fengu fræðslu um hvað fer fram í því húsi. Áður höfðu þeir kynnst því hvaða fiskar lifa í Breiðafirði og sett upp sýningu um vinnuna sína. Fiskaverkefnið má skoða á heimasíðunni.




Um miðjan maí fór bekkurinn í sína árlegu hjólaferð og hjóluðu frá Ólafsvík og út á Hellissand með stoppi í Rifi þar sem þeir gæddu sér á pizzusnúðum sem þeir höfðu bakað fyrir ferðina . Allir voru vel útbúnir og veðrið gott fyrir skemmtilega útivist. Hér má sjá nánar um þessa skemmtilegu ferð.






Starfsdagur skólans í dag var að stórum hluta helgaður vinnu við átthagafræðina. Kennarar fengu leiðbeiningar og kennslu um notkun nýrra leiða til að vinna og birta efni á síðunni. Í framhaldi af því var unnið ötulum höndum við að setja saman efni frá starfi vetrarins sem mun verða birt fljótlega auk þess sem Sóley og Eva tóku að sér að endurnýja örnefnaheitin á starfstöðinni.






Kennarar á yngsta stigi ákváðu síðasta haust að vinna verkefni tengt átthagafræðinni í hringekju. Hringekjan er uppbrot á hefðbundnu bekkjarstarfi og í henni er lögð áhersla á blandaða aldurshópa þvert á bekki. Þema einkennir starfið og á u.þ.b. 4 -6 vikna fresti er skipt um þemu og lögð áhersla á að hafa fjölbreytt viðgangsefni sem tengjast nærumhverfinu. Að þessu sinni voru viðfangsefnin;Tröð, Keflavíkurvör og Krossavík.

Verkefni um Tröð var unnið í skólanum. Nemendum var sagt frá einkennum og sögu Traðarinnar og skoðuðu þeir kort af svæðinu áður en þeir byggðu svo Tröðina úr legókubbum á stórt korti sem teiknað var upp.



Í verkefni um Keflavíkurvör var unnið með kort, gagnsemi þeirra og hvernig þau hafa breyst í gegnum tíðina. Nemendur skoðuðu kortabækur, google maps og öpp og áttuðu sig á hvernig nota má þau til að rata. Kort af Hellisandi var skoðað í google maps áður en lagt var af stað og þau notuðu það til að átta sig á hvaða leið þau ættu að fara frá skólanum að Keflavíkurvörinni. Á vettvangi var spáð í sögu staðarins og þá starfsemi sem þar fór fram og það skemmtilega var að einn nemandi sá mynd af afa sínum á upplýsingakorti á staðnum og með því skapaðist áhugaverð tenging þegar þau áttuðu sig á að þau ættu tengingu við staðinn í gegnum ættingja.


Verkefni um Krossavík var einnig unnið á vettvangi. Hóparnir skrifuðu bréf sem þeir settu í glerflösku og köstuðu út áhaf. Nemendur veltu fyrir sér hvaða lífverur eru á landi og sjó í Krossavíkinni og spáðu í hvort einhver ætti eftir að lesa flöskuskeytið þeirra.





bottom of page